ATH! Eins fyrir alla alvöru leiki verður haldinn blaðamannafundur fyrir þennan, en hann er sýndur í beinni útsendingu á ÍBV TV, fimmtudaginn 19.des kl.18:00. Hlekkur inn á ÍBV TV: https://www.youtube.com/channel/UCNvFnGI7wUSMkjVbCbU8D0w
Stjörnuleikurinn 2019 verður haldinn í allri sinni dýrð föstudaginn 20.desember. Leikur hefst á slaginu 18:00 og er fólk hvatt til að mæta tímanlega, til þess að tryggja sér sæti. ATH, leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á ÍBV TV: https://www.youtube.com/channel/UCNvFnGI7wUSMkjVbCbU8D0w
Liðin eru skipuð sem hér segir:
Rauðar stjörnur: Bláar stjörnur:
Stefán Róberts Þórhallur
Gummi Mix Brimnes Guðni Davíð
Daníel Smári Birgir Reimar
Anton Katrín Helena
Grétar Þór Óli Jóns
Agnar Smári Teddi
Þjálfari: Maggi Stef Róbert Aron
Þjálfari: Kári Kristján
Það kostar 2.000 kr.- inn fyrir fullorðna en 1.000 kr.- fyrir börn en allur ágóði rennur óskiptur í ferðasjóð Gleðigjafanna fyrir ferð þeirra til Tenerife. Júlíana okkar sér um innrukkunina, af sinni alkunnu snilld. Þeir sem komast ekki á leikinn en vilja leggja þessu góða málefni lið geta lagt inn á eftirfarandi reikning, með skýringunni „Stjörnur“:
Kennitala: 460218-0390
Reikningsnúmer: 582-26-4602
Við viljum svo benda á ÍBV-hlaðvarpið, en nýjasti þátturinn þar er tengdur Stjörnuleiknum og það má enginn láta hann framhjá sér fara:
https://soundcloud.com/daniel-geir-moritz
Áfram ÍBV og Gleðigjafarnir
Alltaf, alls staðar!