ÍBV stelpurnar fóru upp í stigatöflunni og lengra frá fallsætinu í Olís-deild kvenna og nær úrslitakeppni er liðið vann fjögurra marka sigur á HK, 33-29, er liðin mættust í frestuðum leik í dag.
Jafnt var með liðum fyrstu tíu mínúturnar en þá skildu leiðir. ÍBV náði mest fimm marka forystu í fyrri hálfleik en var þó bara einu marki yfir í hálfleik, 14-13.
Stelpurnar okkar voru með forystuna fyrstu fimmtán mínúturnar í síðari hálfleik en HK náði að jafna metin er stundarfjórðungur voru eftir. Þær voru hins vegar sterkari á síðasta stundarfjórðungnum og höfðu sigur að lokum. Ester Óskarsdóttir, Sunna Jónsdóttir og Ásta Björt Júlíusdóttir gerðu allar sjö mörk fyrir ÍBV en Darija Zecevic átti góðan leik í markinu með 35% markvörslu.
Þær eru því nú í næst neðsta sætinu með sjö stig en HK er í 4. sætinu með tíu stig. Næsti leikur í Olísdeildinni er laugardaginn 18.desember kl. 16:00 á Ásvöllum gegn Haukum.

Jafntefli hjá strákunum um helgina gegn Fram
ÍBV strákarnir tók á móti liði Fram á laugardaginn í Olísdeild karla í handbolta. Lokatölur 23:23.
Þeir eru því í 7. sæti með 14 stig. Næst spila þeir í Kaplakrika gegn FH 15. desember kl. 16:00 í Olísdeildinni.
