Komnar áfram í 8 – liða úrslit Mjólkurbikarsins
Stelpurnar sigruðu Keflavík í dag með tveimur mörkum gegn engu og eru þar með komnar í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins.
Fyrramark ÍBV var sjálfsmark Keflavíkur á 66. mínútu (Ana Paula Santos Silva) aðeins tveimur mínútum síðar skorar Olga Sevcova og kemur þeim í 2 – 0.
Dregið verður um leikina í 8 liða úrslitum á morgun, mánudag.
Tap gegn Stjörnunni og rauða spjaldið
Strákarnir spiluðu á Samsung vellinum í dag og lútu þar lægra haldi gegn Stjörnunni. Endaði leikurinn 1-0. En það var Óli Valur Ómarsson sem átti sigurmarkið.
Þetta var fjórða tap ÍBV í sjö leikjum og eru sitja þeir því í næst neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig.
Atli Hrafn Andrason fékk að líta rauða spjaldið eftir að hann var nýfarinn af velli en það fékk hann fyrir að æsa sig á varamannabekknum.

