Miðasala á Þjóðhátíð fór heldur betur vel af stað í gær, hún fór það vel af stað að kerfið hrundi og fljótlega varð fullt í þær ferðir sem eru hvað vinsælastar, til Eyja á föstudegi og frá Eyjum á mánudegi sagði Hörður Örri nú í morgun þegar Tígll heyrði í honum.
Sunnudagspassinn seldist líka gríðarlega vel en eitthvað er eftir af miðum þá og eins í laugardagspassann.
Undirbúningur fyrir hátíðina sjálfa er í fullum gangi og hlakkar okkur til að bjóða gestum okkar upp á Þjóðhátíð aftur.
Fyrstu listamennirnir sem koma fram á Þjóðhátíð voru kynntir í gær, Emmsjé Gauti, einn vinsælasti rappari landsins, og Aldamótatónleikarnir en þar stíga á stokk Birgitta Haukdal, Magni, Hreimur, Gunni Óla og Einar Ágúst.
og Þjóðhátíðarlagið 2021 verður frumflutt á morgun föstudag.
Forsalan stendur yfir til 16. júlí og félagsmenn ÍBV geta keypt miða á sínum kjörum til 2. júlí.
Forsíðumynd: Stebbi Run ( Stefán) og Óli Run (Ólafur), Búðarfellsbræður mynd tekin 1937-40

