Miðvikudagur 18. nóvember 2026

Stefnir á stýrimannaskólann eftir GRV – mynband

Ætlar að verða skipstjóri eins og afi og pabbi

Fór í fyrsta túrinn sex ára gamall

Guðmundur Huginn Guðmundsson yngri eða Huginn eins og hann er kallaður er tólf ára að verða þrettán seinna á þessu ári, hefur farið á sjóinn reglulega síðan hann var sex ára gamall. Hann hefur farið á sjóinn öll sumur og einnig alltaf einn Loðnutúr ár hvert þegar það er Loðnuvertíð. 

Hlakkar til að klára námið og fara á sjóinn

Hann nýtti því vetrarfríið sitt í ár í að fara á loðnu með Huginn VE en skipstjórinn er afi og alnafni Hugins og einnig er pabbi hans skipstjóri á Huginn VE Guðmundur Ingi Guðmundsson. Þessi túr var í fimm daga en Huginn hefði viljað vera lengur eða fara bara annan túr. Hann getur ekki beðið eftir því að klára námið og komast á sjóinn. 

Skemmtilegast að veiða loðnu og frysta makríl

Við spurðum Huginn hvað væri mest skemmtilegast við veiðimennskuna og hann svaraði að veiða loðnuna og einnig að frysta makríl. Hann hefur aðeins einu sinni orðið sjóveikur en þá var skítaveður eins og hann orðar það. Við spurðum hann hvort það væri einhver leiðinleg verk sem tilheyra sjómennskunni? Það kom þó nokkuð löng þöng svo nei það er allt gaman við sjómennskuna. En hann tekur nú fram að hann sleppi nú enn við að þrífa í lok túrs sem gæti flokkast undir leiðinleg verk.

Elstur þriggja bræðra

Mamma Hugins er Aníta Óðinsdóttir, hann á tvo yngri bræður þá Gabríel Gauta og Óðinn Inga. 

Huginn heldur með Man U í enska og auðvitað ÍBV hér heima, hann elska pasta og nautakjöt og helsta appið sem hann notar er Instagram. 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search