Friðrik Benediktsson ofurhlaupari fór vel með 167,5 km í Bakgarðinum sem fór fram núna um helgina.
Markmið Friðriks var að tryggja sér silfur miða í HM í Bakgarðinum. Sem tókst hjá kappanum.
Við óskum Friðriki til hamingju með frábæran árangur.
Bakgarðurinn er með þannig fyrirkomulag að hlaupari hleypur 6,74 km hring og hefur eina klukkustund til að klára þá vegalengd. Sá vinnur sem fer flesta hringi. Sex efstu hlaupararnir tryggja sér silfur miða á HM. Það er einmitt það sem Friðrik stefnir á að gera.
Til þess að eiga möguleika á því þarf hann að hlaupa 160 til 200 km sem tekur þá 24 til 30 klst.
Verður starfsmaður á plani í The Puffin Run
Hið árlega Puffin Run er svo helgina þar á eftir, þann 7. maí, en Friðrik stefnir á að hjálpa eingöngu til við hlaupið þar sem hann þarf hvíld eftir Bakgarðinn. Hér eru hans ráð til hlaupara sem eru að fara að taka þátt í Puffin Run.
„Ég verð aldrei leiður á að fara þessa leið og nota hana mikið í mínum æfingum, bæði heilan hring og styttri leiðir úr henni, og alltaf sé ég eða upplifi eitthvað nýtt í hverju hlaupi. T.d. í fyrra þá fór ég hringinn tvisvar sinnum en hvorugur hringurinn var eins, alltaf eitthvað nýtt poppar upp. Ég veit ekki hvað ég hef hlaupið þessar leiðir oft en þeir eru orðnir mjög margir kílómetrarnir sem ég hef eytt á þessari leið og alltaf heillar hún mann með einhverju nýju.
Núna í ár erum við en að ná að fækka malbikuðu köflunum á leiðinni sem mér finnst frábært og fagna því mjög.
Núna er ný leið upp á Stórhöfða sem er mjög skemmtileg en á sama tíma mun meira krefjandi og með frábæru útsýni.
Það mun vera brjáluð stemning strax frá upphafi og allt að endamarkinu.
Mest krefjandi:
Mér finnst fjaran erfiðasti kaflinn á leiðinni, hún tekur úr manni allan vind ef maður passar sig ekki, og það á sérstaklega við núna þar sem vil lengdum fjöru kaflann og förum upp á Stórhöfða á öðrum stað. Þá borgar sig að vera aðeins á bremsunni þar.
Eins kemur smá brekka upp að Kinn þegar um 11,5-12 km eru búnir af leiðinni. Ekki brattasta brekkan en ótrúlega lúmsk 1,5 km brekka sem sem getur tekið í ef maður reynir of mikið.
Skemmtilegast:
Mér finnst Stórhöfðinn alltaf skemmtilegur og finnst fátt skemmtilegra en að láta mig flakka á niðurleiðinni. Eins er hraunið í lokin algjörlega stórbrotin leið en á sama tíma erfið á fótinn og mjög tæknileg.
Ráð fyrir byrjendur:
Hringurinn er með um 640 m hækkun þannig að leiðin er krefjandi en á sama tíma algjörlega einstök.
Fyrstu 5 km eru nokkuð þægilegir 3,5 km á malbiki í byrjun sem hægt er að rúlla bara nokkuð þægilega en samt ekki fara of hratt á stað.
5-10 km kaflinn.
Þá er leiðin talsvert upp og niður á sumstaðar tæknilegum stígum sem borgar sig að horfa vel fram fyrir sig.
Fjaran kemur eftir um 7,5 km og þá borgar sig eins og ég sagði áðan að vera aðeins á bremsunni og upp Stórhöfðan þar sem 10 km drykkjarstöðin er.
10-15 km kaflinn
Þá er þessi brekka sem ég nefndi áðan upp að Kinn sem er lúmsk og mjög langdreginn en samt vel hlaupanleg.
15-20 km kaflinn.
Þar kemur skemmtilegur kafli á bakvið Eldfellið sem er hressandi kafli sem getur rifið í, þá sérstaklega ef það er þurrt. Þá getur vikurinn í hrauninu verið laus og þá er hætta á að byrja að spóla sem eyðir óþarfa orku.
Þegar um 17,5 km er búnir þá kemur hraunið fyrir alvöru mögnuð leið en ekki hættulaus og borgar sig fyrir reynslu minna fólk að horfa vel fram fyrir sig og passa hvar það stígur niður.
Síðasti 1,2 km hlutinn er þegar maður kemur niður í fjöruna þá er bara um að gera að fara all inn og enda hlaupið með stæl, smá fjara til að byrja með og svo malbik að mestu í mark.“





