Ákveðið hefur verið að ráða Stefán Jónsson sem yfirlögregluþjón í Vestmannaeyjum frá 1. júní nk.
Stefán gegnir nú stöðu aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Stefán tekur við af Jóhannesi Ólafssyni sem lætur af störfum frá sama tíma vegna aldurs.
Jóhannes hóf störf í lögreglunni 12. október 1982 og var skipaður yfirlögregluþjónn við embættið í Eyjum 1. ágúst 2002. Hann hefur því starfað hjá embættinu í rúmlega fjóra áratugi og er með lengsta starfsaldur lögreglumanns sem starfað hefur í Vestmannaeyjum.
Embættið þakkar Jóhannesi fyrir samstarfið og býður Stefán velkominn til starfa, segir að lokum í tilkynningu frá Lögreglunni í Vestmannaeyjum.