08.04.2020
SÁÁ og Svartigaldur hafa gert með sér samkomulag um að útbúa stafræna útgáfu af álfinum 2020. Álfasala SÁÁ hefur verið mikilvægasta fjáröflunarleið samtakanna í 30 ár en í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru í samfélaginu er ljóst að hún getur ekki farið fram á hefðbundinn hátt.
„Í tengslum við fréttaflutning af þeim fjárhagslegu áskorunum sem samtökin standa frammi fyrir höfðu forsvarsmenn Svartagaldurs samband til að kynna fyrir okkur nýjar aðferðir í álfasölunni,“ segir Ásgerður Björnsdóttir, framkvæmdastjóri SÁÁ. „Hugmyndin er alveg frábær og byggir á því að selja stafræna útgáfu af álfinum sem fólk getur póstað á samfélagsmiðlum og þannig vakið athygli annarra á stuðningi sínum og á þann hátt stuðlað að auknum sýnileika álfsins.“
Frá upphafi hafa rúmlega 26 þúsund einstaklingar komið í meðferð til SÁÁ en fjármunir sem safnast í álfasölunni renna beint inn í meðferðarstarfið og tryggja að hægt sé að bjóða fólki bestu fáanlegu þjónustu.
