Þriðjudagur 10. nóvember 2026

Stærsta Lundabyggið í heimi – spjall við Mara – myndband

Í Álsey er stærsta Lundabyggði í heiminum alls um 120.000 Lundapör og 20% af öllum Lunda í heiminum er í Vestmannaeyjum segir Mari (Marinó Sigursteinsson).

Tígull átti stuttu spjalli við Mara í dag, við mæltum okkur mót við fuglaskoðunarhúsið á Stórhöfða.

Nú er Lundapysju- tímabilið hafið og í ár er það snemma miðað við síðustu ár, en alls ekki ef við miðum við hvernig þetta var í denn eins og þeir segja, þá er þetta einmitt tíminn.

Það er stórkostlegt að fylgjast með Lundanum segir Mari, hann er svo montinn fugl alveg frábær. Þegar við stóðum fyrir utan fuglaskoðunarhúsið vappaði Lundinn rétt hjá okkur sposkur á svip og var ekkert að láta okkur trufla sig.

Mari fór út í Elliðaey síðasta mánudag, hann hefur ekki séð eins mikið af fugli síðustu 25 ár, allar brekkur fullar af fugli, Lundinn flýgur í svo kallaða skrúfu, sem Mari segir að hann hafi ekki séð lengi.

Passa þarf upp á fiðrið á pysjunum

Mari vill koma á framfæri til allra duglegu krakkanna sem eru á pysjuveiðum, að mjög mikilvægt er að passa upp á fiðrið. Það er í raun jafn mikilvægt og ætið þeirra. Ef að fiðrið á pysjunum fer ílla þá lifa þær ekki af. Mari biðlar til allra að hafa þær ekki saman í kassa eða þá hólfa þær niður í kassanum svo þær fari sem best.

Rodrigo A. Mrtínez Catalan tók þessa fallegu mynd
Skroðan hleypur á sjónum þegar hún tekur á loft. Rodrigo A. Mrtínez Catalan tók þessa fallegu mynd
Örn Hlimisson tók þessa flottu mynd af vin okkar Lundanum
Halldór B. Halldórsson fór á fund Lundans um daginn og greyp þetta andartak.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search