Í síðustu viku var verið að bólusetja grunnskólabörn, fólk í elstu aldurshópum, skjólstæðinga dagdvalar og heimahjúkrunar og boðið upp á örvunarskammta handa þeim sem fengið hafa Janssen eða einungis fengið 1 bólusetningu með pfizer eða Astra Zenica.
Ekki eru áætlaðar hópbólusetningar næstu 2 vikur. Ef einstaklingar óska eftir bólusetningu fyrir þann tíma, til dæmis börn sem gátu ekki mætt í bólusetningar í síðustu viku, fólk sem á eftir að fá seinni örvunarskammt eða af öðrum orsökum , þá er þeim bent á að hafa samband við heilsugæslu , sími 4322500 og láta vita af sér og mun heilsugæslan reyna að koma á móts við óskir þessara einstaklinga.
Til upplýsinga þá þurfa að líða 3 mánuðir frá því að einstaklingur fær covid og þar til hann fær örvunarskammt. 3 mánuðir þurfa að líða frá seinni bólusetningu með pfizer eða Astra Zenica þar til að einstaklingar 70 ára og eldri fá 3ja örvunarskammt og 6 mánuðir fyrir fólk 60 + og heilbrigðisstarfsfólk . Fólk mun fá boð í bólusetningar