Covid

Sóttkví og einangrun – reglur um styttri tíma

Sóttvarnalæknir hefur lokið endurskoðun á reglum um sóttkví og einangrun vegna Covid-19 og er niðurstaðan sú að stytta megi einangrun smitaðra og sóttkví þeirra sem hafa verið útsettir fyrir Covid, án þess að auka hættu á útbreiðslu veirunnar.

Heilbrigðisráðherra hefur gert breytingu á reglugerð nr. 1100/2021 þessa efnis, í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Að uppfylltum skilyrðum getur tími í einangrun orðið skemmstur sjö dagar.

Almenn krafa um dvöl í sóttkví styttist úr sjö dögum í fimm, að því gefnu að henni ljúki með neikvæðri niðurstöðu úr PCR prófi. Ef einstaklingur undirgengst ekki PCR próf til að ljúka sóttkví þarf hann að sæta henni í 14 daga. Reglugerðin tekur gildi frá og með  deginum í dag 29. október og taka breyttar reglur einnig til þeirra sem þegar eru í sóttkví eða einangrun.

Reglugerðinni sem birt er hér að neðan fylgja leiðbeiningar sóttvarnalæknis fyrir almenning varðandi heimasóttkví og leiðbeiningar varðandi einangrun í heimahúsi.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is