09.10.2020
Þegar hömlur og takmarkanir eru orðnar hluti af daglegu lífi okkar þá þurfum við að finna lausnir til að geta framkvæmt það sem okkur er svo mikilvægt.
Á föstudögum er það hefð á Sóla að vinakjarnar koma saman í sal þar sem Marta Jónsdóttir leikskólakennari stýrir dásamlegum söngfundi, þar syngjum við og dönsum okkur inn í helgarfríið.
Engar takmarkanir eru á börnunum en kennarar þurfa að gæta að ákveðnum reglum, því ákváðum við að færa söngfundinn okkar út undir beran himinn og njóta samverunnar.
Gleðiríka helgi til ykkar allra frá okkur á Sóla.