Það hefur fjölgað einstaklingum í einangrun í Vestmannaeyjum síðustu daga.
Í dag eru 16 einstaklingar skráðir í einangrun. Þetta er enn tiltölulega afmarkað, þ.e. að vitað er um uppruna flestra smitanna og hvernig þau tengjast.
Að sjálfsögðu hefur maður áhyggju þegar tölurnar fara uppávið og líkurnar aukast á að veiran fari af stað í samfélaginu en við finnum að fólk tekur tilmælum sóttvarnarlæknis vel og vonandi duga þær aðgerðir sem eru í gangi til að draga úr fjölgun smita segir Davíð Egilsson, Svæðislæknir sóttvarna í Vestmannaeyjum