Þriðjudagur 26. september 2023

Smitin orðin tvö í Vestmannaeyjum og 79 eru í sóttkví

09.08.2020 kl 14:00

Tveir einstaklingar eru nú í einangrun í Vestmannaeyjum og 79 í sóttkví. Einn einstaklingur hefur lokið sóttkví.

Í gær fór fram skimun á vegum HSU í Vestmannaeyjum meðal einstaklinga í sóttkví og var hún vel sótt. Á morgun fer fram skimun á vegum Íslenskrar erfðagreiningar til að kanna útbreiðslu veirunnar í Vestmannaeyjum. Þeir sem hafa skráð sig eru hvattir til að mæta.

Aðgerðastjórn ítrekar mikilvægi þess að bæjarbúar gæti vel að eigin smitvörnum og sæki C-19 smitrakningarapp almannavarna.

Aðilum með flensueinkenni er bent á að hafa samband við læknavaktina í síma 1700 og fá tíma í sýnatöku.

F.h. aðgerðastjórnar,

Arndís Bára Ingimarsdóttir, aðgerðastjóri.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is