Í dag eru 22 einstaklingar í einangrun í Vestmannaeyjum
Varðandi stöðuna á HSU þá kom upp smit hjá starfsmanni og var ákveðið að á meðan að frekari upplýsinga væri aflað færi allt starfsfólk í smitgát.
Við frekari skoðun og samkvæmt ráðleggingum frá sóttvarnarlækni Suðurlands var smitgát almennt aflétt hjá starfsfólki, 1 fór í sóttkví og 2 í smitgát.
HSU- Vestmannaeyjum heldur uppi fullrit þjónustu en verulega aukið álag er vegna einkennasýnatakana og hraðprófa sem ber að sinna segir í tilkynningu frá Davíð Eglissyni yfirlækni Heilsugæslunnar í Vestmannaeyjum