02.06.2020
Slökkviliðið lét ekki sitt eftir liggja á hreinsunardeginum 30.maí þegar nokkrir vaskir kappar úr liðinu mættu saman ásamt starfsmanni Isavia og tóku til á sameiginlega æfingasvæðinu okkar á flugvellinum og svæðinu þar í kring.
Árangurinn lét ekki á sér standa og fljótlega var komin myndarlega hrúga af allskonar dóti sem sumt hvert þurfti bókstaflega að grafa upp úr jarðveginum.
Á eftir var svo boðið upp á hressingu að hætti hússins
Takk fyrir daginn
Slökkviliðsstjóri
Greint er frá þessu á facebooksíðu Slökkviliðsins.
