Föstudagur 1. desember 2023

Skrifa undir samstarfssamning vegna frekari rannsókna á sviði fæðingarorlofs

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, Stefán Hrafn Jónsson, forseti félagsvísindasviðs Háskóla Íslands og Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, hafa skrifað undir samstarfssamning sem snýr að frekari rannsóknum á sviði fæðingarorlofsmála.

Um er að ræða samstarf vegna rannsóknarinnar Taka og nýting á fæðingarorlofi meðal foreldra á Íslandi, en markmið hennar er að meta hvernig íslensk löggjöf um fæðingar- og foreldraorlof nýtist foreldrum og horft verði sérstaklega á áhrif þeirra auknu réttinda sem hafa verið innleiddar á síðustu 3 árum. Samningurinn gildir frá 1. desember 2020 til 1. desember 2023.

Rannsókninni er skipt í þrjá megin rannsóknarþætti:

1) Rannsókn sem byggir á fyrirliggjandi gögnum Fæðingarorlofssjóðs þar sem afurðin verður söguleg samantekt á nýtingu fæðingarorlofs.

2) Tvær megindlegar kannanir, annars vegar meðal foreldra sem hafa nýtt rétt sinn hjá sjóðnum og hins vegar meðal foreldra sem ekki hafa sótt til sjóðsins. Afurðir þessa hluta verða gagnaskrár með svörum foreldra við spurningum kannananna og skýrslur um niðurstöður beggja rannsóknanna.

3) Greining á þeirri stefnumótun sem lá til grundvallar löggjöfinni árið 2000. Afurðir þessa hluta verða fræðilegar greinar til birtingar í íslenskum og alþjóðlegum tímaritum um stefnumótun sem lá til grundvallar lagasetningunni árið 2000.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra: „Það er gleðiefni að tryggja frekari rannsóknir á fæðingarorlofslöggjöfinni. Við höfum lagt mikla áherslu á að endurreisa fæðingarorlofskerfið með tugmilljarða aðgerðum á þessu kjörtímabili og mikilvægur hluti af því er að halda áfram að greina áhrif þessara aðgerða. Rannsóknin sem nú fer af stað mun veita okkur mikilvæga þekkingu um áhrif þessara aðgerða á næstu árum.“

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is