Vestmannaeyjahlaup verður haldið laugardaginn 3. september
Vegalengdir
Boðið verður upp á 5 km og 10 km. Leiðin er mjög falleg og skemmtileg.
Hlaupaleiðin og tímasetningar
Rásmark verður við Íþróttamiðstöðina og hefjast bæði hlaupin kl. 13. Sameiginleg upphitun hefst kl. 12:35. Kort af hlaupaleiðinni er aftast í þessari lýsingu.
Þátttökugjöld og skráning
Skráning er á netskraning.is. Forskráningu lýkur kl. 14:00 föstudaginn 2. september. Ekki verður tekið á móti skráningum á hlaupdag.
Keppnisnúmer og gögn eru afhent milli kl. 17-19 föstudagskvöldið 2. september eða morguninn fyrir hlaup í Íþróttamiðstöðinni.
Eitt þátttökugjald 3.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2007 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt í hlaupið.
Verðlaun
Vegleg verðlaun verða fyrir fyrstu þrjú sætin í kvenna og karlaflokki í 5 og 10 km.
Verðlaun í 5 km.
1.sæti 50.000 kr.
2.sæti 25.000 kr.
3.sæti 15.000 kr.
Verðlaun í 10 km.
1.sæti 100.000 kr.
2.sæti 50.000 kr.
3.sæti 25.000 kr.
Einnig er keppt í aldursflokkum og verðlaun veitt fyrstu konu og karli.
14 ára og yngri
15-19 ára
20-29 ára
30-39 ára
40-49 ára
50-59 ára
60-69 ára
70 ára og eldri
Fæðingarár segir til um aldurshóp sem keppendur tilheyra, ekki fæðingardagur.
Búningsaðstaða
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.
Nánari upplýsingar
Þú getur líka fylgst með hlaupinu á Facebook og á vef hlaupsins, www.vestmannaeyjahlaup.is.
Fyrir þá sem koma ofan af landi þá er um að gera að bóka ferðina yfir tímanlega á: herjolfur.is
Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála.
Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.


