Mánudagur 9. nóvember 2026

Skólastjórar GRV: Léttir að samkomulag náðist

Skólastjórar beggja starfsstöðva Grunnskóla Vestmannaeyja segja jákvætt að Kennarasamband Íslands, sveitarfélögin og ríkið hafi náð saman um framhald virðismats á störfum kennara. Tillaga ríkissáttasemjara var samþykkt laugardaginn 31. október, sama dag og frestur til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningum kennara rann út.

„Mín fyrstu viðbrögð voru léttir því verkföll og erfið eða neikvæð kjarabarátta hefur alltaf áhrif á starfsfólk,“ segir Einar Gunnarsson, skólastjóri Barnaskólans, í svari við fyrirspurn Tíguls.

Anna Rós Hallgrímsdóttir, skólastjóri Hamarsskóla, tekur í sama streng. „Það er jákvætt að þetta skyldi vera samþykkt svo þessi vinna geti haldið áfram og samningar haldist eins og samið var um. Það hefur enginn áhuga á verkföllum eða þeirri umræðu sem skapast oft í kringum kjarasamninga kennara, það hefur áhrif á starfsfólkið,“ segir hún.

Lítið rætt í skólunum

Bæði segja að málið hafi lítið verið rætt innan skólanna. Einar segist hvorki hafa heyrt umræðu um það á kaffistofunni né á fundum sem hann sat, og andrúmsloftið hafi verið óbreytt. Hann hafi heldur ekki orðið var við að óvissan hafi haft áhrif á starfsfólk, mönnun eða ráðningar.

„Þetta kom hratt upp og við lásum þetta í fjölmiðlum eins og aðrir,“ segir Anna Rós.

Nær til allra félaga KÍ

Anna Rós bendir á að virðismatið og samningurinn sjálfur eigi við öll aðildarfélög Kennarasambandsins, ekki aðeins grunnskólakennara. Bæði vísa þau á stéttarfélögin um afstöðu kennara. Einar nefnir Kennarafélag Vestmannaeyja og Anna Rós Kennarasambandið.

Samkvæmt tillögu sáttasemjara heldur vinna við virðismatið áfram til 15. mars 2027. Þá meta samningsaðilar stöðuna og ákveða framhaldið. Náist ekki samstaða geta aðilar sagt samningum upp eftir ferli sem tillagan lýsir, og losna þeir þá 1. október 2027.

Tígull hefur óskað eftir viðbrögðum frá Kennarafélagi Vestmannaeyja. 

Forsíðumynd: samansett.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search