21.08.2020
Nú fer skólahald að hefjast og er skólasetning 25. ágúst nk. Við erum í raun að fara inn í sama landslag og var í vor eftir 4. maí, þ.e. það eru engar takmarkanir á skólahaldi og skólahald verður með sem eðlilegasta hætti. Hvort sem það eru bóklegir tímar, lotur, íþróttir eða frímínútur.
Það skiptir mikli máli að starfsfólki virði 1m regluna
Það sem skiptir mestu máli núna er að starfsfólkið virði þessa 1m reglu sem er í gildi fyrir leik- og grunnskóla og frístundastarf. Við munum nýta reynslu okkar frá því í vor og nota tæknina meira þá að hafa frekar fjarfundi og draga þannig úr að hópar hittist mikið innan skólans, sama gildir með kaffitímana þeim hefur verið skipt niður, því þetta er ansi stór vinnustaður og ljós að það geta ekki allir verið í kaffi á sama tíma með 1m á milli.
Við munum haga sóttvörnum eins og við gerðum í vor og ítrekum enn og aftur handþvott og spritt, bæði fyrir nemendur og starfsfólk.
Ávaxtaáskrift verður ekki í boði í vetur
Varðandi ávexti þá var búið að taka ákvörðun um að það yrði ekki í boði í vetur en skólamaturinn verður með hefðbundnum hætti.
Við munum takmarka komur foreldra inn í skólana og foreldrar sem eru að koma með börnin sín í skólann eða sækja, eiga ekki að koma inn í skólann og því miður getum við ekki boðið foreldrum á skólasetninguna að þessu sinni.
Annars erum við farin að hlakka til að hefja skólahald á ný og að hitta nemendur. Starfsfólk skólans stóð sig virkilega vel síðasta vor í skrýtnum aðstæðum, við erum viðbúin og reynslunni ríkari og tilbúin í nýtt skólaár með þeim áskorunum sem því fylgja.
Biður foreldra að fylgjast vel með á heimasíðu og á facebooksíðu skólans
Í lokin vil ég beina orðum mínum til foreldra, en þar sem við náum ekki að hitta ykkur núna þegar skólinn byrjar, langar mig að biðja ykkur um að fylgjast vel með á heimasíðu skólans, á facebooksíðu skólans og þeim fréttum sem við sendum frá okkur. Það er mikilvægt að þið séuð vel upplýst um skólagöngu ykkar barna, takið fullan þátt, séuð styðjandi og áhugasöm um nám þeirra, góð samvinna heimilis og skóla skiptir öllu máli.
Skólasetning er sem hér segir:
- 2.- 4. bekkur kl. 9:00 í sal Hamarsskóla.
- 5. og 6. bekkur kl. 10:00 í sal Barnaskóla.
- 7. og 8. bekkur kl. 10:30 í sal Barnaskóla.
- 9. og 10. bekkur kl. 11:00 í sal Barnaskóla.
Eftir skólasetningu í sal fara nemendur í stofur og hitta umsjónarkennara.
Nemendur í 1. bekk mæta í einstaklingsviðtöl með forráðamanni til umsjónarkennara
Umsjónarkennari í 1. bekk sendir út fundarboð í vikunni 17. -21. ágúst.
Miðvikudagur 26. ágúst
Skóli hefst samkvæmt stundatöflu hjá 2. – 10. bekk.
- bekkur mætir á eftirfarandi tímum í skólann:
- 1. ALS kl. 8:30
- 1. SEÁ kl. 8:40
- 1. ULI kl. 8:50
Er þetta til að takmarka umferð foreldra sem líklega fylgja börnunum sínum í skólann fyrsta daginn, við mælumst til þess að aðeins eitt foreldri fylgi barni sínu og fylgi því ekki inn í stofur heldur aðeins í andyri.
Nemendur í 1. bekk mæta svo á skólasetningu á sal kl. 9:00.
Mataráskrift og mjólkuráskrift
Hægt er að sækja um mataráskrift og mjólkuráskrift fyrir nemendur rafrænt eða prenta út eyðublað á heimasíðu skólans grv.is (í flipa neðst á síðunni undir eyðublöð, innheimta v/máltíða, mjólkur og ávaxta) fylla út og skila til skólaritara.
Stundatöflur nemenda er hægt að sjá inná Mentor
Skóli hefst miðvikudaginn 26. ágúst en skólamáltíðirnar hefjast degi síðar, fimmtudaginn 27. ágúst.
Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri GRV.