Nú hefst á ný góða rútínan okkar allra, skólinn að hefjast og sumarfrí að klárast
Skólasetning hjá 2. – 10. bekk verður á morgun þriðjudag 23. ágúst í sal 1 í íþróttahúsinu. Eftir skólasetningu fara nemendur í sínar stofur í skólanum og hitta umsjónarkennara.
Foreldrar eru velkomnir með.
Nemendur í Barnaskóla mæta kl. 11:30 og nemendur í Hamarsskóla kl. 12:15
Einstaklingsviðtöl hjá 1. bekk eru einnig á morgun þriðjudaginn 23. ágúst, umsjónarkennarar hafa samband vegna tímasetninga.
Skólasetning hjá 1. bekk er 24. ágúst kl. 8:20 í sal Hamarsskóla, eftir skólasetningu fara nemendur í stofu með umsjónarkennurum og foreldrar verða eftir á stuttum fundi með stjórnendum. Við biðjum foreldra að gefa sér smá tíma í það.
Skóli hefst samkvæmt stundatöflu þann 24. ágúst hjá 2. -10. bekk.

