02.11.2020
Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi vegna hertra sóttvarnaaðgerða sem tekur gildi 3. nóvember hefur verið birt.
Starfsfólk leik- og grunnskóla hefur skipulagt starfið í samræmi við nýju reglurnar og verður skólahald næstu tvær vikur með eftirfarandi hætti:
Skólahald er með nokkuð eðlilegum hætti í leikskólum og á yngsta stigi. Það er því miður einhver skerðing á skóladegi á mið- og unglingastigi.
Leikskólar
- Engar breytingar þar sem leikskólarnir í Eyjum hafa starfað með hólfaskiptingar síðustu vikur.
- Áfram verður tekið á móti börnum úti þegar veður leyfir.
- Foreldrar/forráðamenn skulu staldra eins stutt við í fataherbergi og kostur er og nota grímu.
Grunnskóli/Hamarsskóli
- Hefðbundin kennsla verður skv. stundaskrá í 1 -4. bekk.
- Íþróttakennsla og sund fellur niður þar sem íþróttahúsið er lokað. Þeim tímum verður sinnt í skólanum.
- Skólamatur er í boði.
Grunnskóli/Barnaskóli
- Nemendur í 5.-10. bekk mæta í skólann kl. 8:20
- Valgreinar á unglingastigi falla niður.
- Íþróttatímar falla niður hjá 9. og 10. bekk en verða nýttir til kennslu hjá 5.-8. bekk í skólanum. Allir sundtímar falla niður.
- Allir nemendur þurfa að mæta með grímu sem þeir bera á sameiginlegum svæðum en að auki þurfa nemendur á unglingastigi að bera grímur í kennslustofum þar sem ekki er hægt að tryggja 2m fjarlægð.
Frístundaver
- Hópaskiptingar verða þær sömu og í skóla.
- Börnin verða úti í lok dags ef veður leyfir.
- Foreldrar/forráðamenn og aðrir utanaðkomandi aðilar skulu ekki koma inn í bygginguna nema brýna nauðsyn beri til og þá skal nota grímu.
Tónlistarskóli
- Kennsla verður í tónlistarskólanum.
- Huga verður að 2 m reglunni og nota grímur þegar ekki næst að halda hana.
- Aðrir en nemendur og kennarar eiga ekki að koma inn í tónlistarskóla nema brýna nauðsyn beri til og skal þá nota grímu.
Foreldrar/forráðamenn eiga ekki að koma inn í skólabyggingarnar nema brýna nauðsyn beri til og skulu þeir þá vera með grímu. Sama á við um aðra utanaðkomandi aðila.
Nánari upplýsingar berast frá skólastjórnendum í tölvupósti.
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
Forsíðumynd: Tói Vídó