Skóladagur Hamarsskóla verður á fimmtudaginn næsta, 26. janúar frá klukkan 17:00 til 19:00.
Nú standa yfir þemadagar í skólanum þar sem þemað er eldgosið á Heimaey. Afrakstur þemadaganna verður til sýnis á skóladaginn, opið verður inn á Víkina og 4. bekkur mun sjá um veitingasölu í matsalnum.
Starfsfólk skólans hvetur foreldra og forráðamenn til að mæta.
Hér má sjá krakkana útbúa listina sem verður sýnt á fimmtudaginn: