Niðurstöður sýna sem tekin hafa verið af skipverjum um borð í Hrafni Sveinbjarnarsyni GK leiða það í ljós að ekki er um Covid 19 veiru að ræða.
Sýnin sem tekin voru af skipverjunum um borð frá Hrafni Sveinbjarnarsyni GK frá Grindavík reyndust vera neikvæð m.t.t. COVID-19 og búið er að aflétta sóttkví af þeim. Sóttkvíin var sett á í varúðarskyni á meðan málið var rannsakað, en 17 af 25 skipverjum höfðu veikst af öndunarfærasýkingu á um viku tímabili í túrnum. 3-4 þeirra voru vel lasnir og því þótti rétt að skipið kæmi inn í Eyjum. Enginn þeirra þurfti þó að leggjast inn á sjúkrahús.