Skipin fyllt á tveimur sólarhringum

14.07.2020

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu fullvermi í Vestmannaeyjum í gær. Síldarvinnslan.is ræddi við skipstjórana í morgun en þá voru bæði skipin að veiðum á Mýragrunni. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að síðasti túr hefði gengið mjög vel. „Við fylltum skipið á tveimur sólarhringum en aflinn var aðallega ýsa og ufsi. Þetta var stór og fallegur fiskur. Við byrjuðum að veiða á Mýragrunni, færðum okkur um tíma austur á Stokksnesgrunn og síðan aftur á Mýragrunn þar sem var hörkuveiði. Haldið var til veiða á ný strax að löndun lokinni,“ segir Birgir.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, sagði einnig að tvo sólarhringa hefði tekið að fylla skipið í síðustu veiðiferð. „Við byrjuðum á Stokksnesgrunni í ýsu og ufsa og þar var fínasta veiði. Við veiddum einnig um tíma á Reynisdýpinu en þar fékkst karfi og ufsi. Þar vorum við í skrapveiði. Nú erum við á Mýragrunninu og erum að fá ýsu, en hún heldur sig helst þar sem síldin hrygnir. Ýsan sækir mjög í síldarhrognin. Stundum höfum við verið að fá ýsu á Péturseynni í júní og júlí en nú heldur hún sig ekki þar,“ segir Ragnar.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is