Stjörnugrís hf. hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað eina framleiðslulotu af Skinku 80 eftir að málmbútur fannst í vörunni. Skinkan hefur verið seld í verslunum Bónuss og Krónunnar, sem báðar eru reknar í Vestmannaeyjum.
Innköllunin nær aðeins til lotunúmers 6002-26286 (strikamerki 5694230203031). Þeir sem eiga skinku úr þessari lotu eru beðnir að borða hana ekki heldur skila henni í verslunina þar sem hún var keypt.

