Ein af skemmtilegu hefðum okkar hérna í Eyjum er flugeldabingó ÍBV og var húsfyllir í Höllinni í ár. Þeir Grétar Þór og Teddi sáum um að stjórna bingóinu í ár, sem þeir gerðu að mestu snilld, það er að segja eftir að Teddi lærði að snúa rétt hjólinu þá gekk allt eins og í sögu. En jú hann Siggi Braga var þeim innan handar líka og afhenti vinninga og fékk Siggi að vera með á nokkrum myndum af vinningshöfum eftir mikið suð að hans hálfu. Takk fyrir frábæra skemmtun ÍBV.
Laugardagur 3. júní 2023