Það var líf og fjör um síðustu helgi á Bókasafninu
Á laugardaginn var verkefnið Kveikjum neistann kynnt í Einarsstofu af Hermundi Sigmundssyni prófessor og Svövu Þ. Hjaltalín sérkennara. En það er skólaþróunarverkefni sem Grunnskólinn í Vestmannaeyjum vinnur að næstu 10 árin.
Helsta áhersla verkefnisins er að stórauka lestrarfærni barna og ungmenna, einnig er unnið með aðra þætti.
Einnig opnuð sýning í Einarsstofu á Floorbooks verkefnum barna á leiksólanum Kirkjugerði. Lýsa má Floorbooks sem einskonar samvinnunámsbók þar sem drifkrafturinn er forvitni og leikur barnahópsins.
Mikil gleði var í ratleik á efri hæðinni, Hrekkjavökuföndur í lesstofunni og boðið var upp á kaffi og smákökur.