Skáknámskeið fyrir fullorðna hefst í kvöld, mánudaginn 2. nóvember, kl. 20 í taflheimili Taflfélags Vestmannaeyja að Heiðarvegi 9a. Auðunn Haraldsson kennir á námskeiðinu, sem er ætlað bæði byrjendum og þeim sem vilja rifja upp gamla takta.
Skráning verður opin út vikuna, svo þeir sem komast ekki í kvöld, til dæmis vegna vinnu, geta byrjað aðeins seinna. Skráð er á: Skák fyrir byrjendur
Kennt er á mánudögum og miðvikudögum kl. 20–21 í sex vikur og lýkur námskeiðinu 9. desember. Lágmarksaldur er 13 ár, ekki þarf að kunna mannganginn og þátttakendur þurfa ekki að taka neitt með sér. Námskeiðsgjaldið er 19.900 krónur og námskeiðið er styrkt af Vestmannaeyjabæ úr sjóðnum Viltu hafa áhrif.
Nánar var fjallað um námskeiðið á Tígli í síðustu viku: Skáknámskeið fyrir fullorðna hefst á mánudag

