Miðvikudagur 7. júní 2023
Sjúkraþáfarar

Sjúkraþjálfarar án samnings: Afnám kröfu um tveggja ára starfsreynslu vegna endurgreiðslu

Heilbrigðisráðherra hefur framlengt til 31. október gildistíma reglugerðar um endurgreiðslu kostnaðar vegna þjónustu sjúkraþjálfara sem starfa án samnings við Sjúkratryggingar Íslands

Jafnframt er fellt úr gildi það skilyrði fyrir endurgreiðslu að sjúkraþjálfari hafi starfað í að minnsta kosti 80% starfshlutfalli í tvö ár eftir löggildingu.

Gildandi reglugerð um endurgreiðslur kostnaðar vegna þjónustu sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara hefði að óbreyttu runnið út um þessi mánaðamót. Vonir stóðu til að samningar næðust milli Sjúkratrygginga Íslands og sjúkraþjálfara fyrir þann tíma, en það gekk ekki eftir. Því var ákveðið að framlengja gildistíma reglugerðarinnar þannig að þau sem þurfa á þessari mikilvægu þjónustu njóti greiðsluþátttöku sjúkratrygginga, þrátt fyrir að samningur um þjónustuna liggi ekki fyrir.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is