19.06.2020
„Nú liggur vel á mannskapnum hjá Vinnslustöðinni en Kap landaði í þriðja sinn í gær frá því makrílvertíðin hófst og Huginn fór í löndun nr tvö einnig í gærkvöldi.
Mjög fínn og fallegur fiskur sem berst okkur.
Þegar svona gengur tekur sig upp sjö mánaða gamalt bros eða frá því við vorum í síldarvinnslu í fyrra!“ segir Benóný Þórisson framleiðslustjóri uppsjávarsviðs Vinnslustöðvarinnar.
Kap kom sem sagt til hafnar á þjóðhátíð Íslendinga með 415 tonn af makríl og þá þegar var farið að landa aflanum og vinna hann.
Huginn var kominn með 300 tonn í gærmorgun og kom til löndunar í gærkvöld.
Greint er frá þessu á vef vsv.is