12.11.2020
Í tilkynningu frá Herjólfi ohf segir:
Enn er ófært til Landeyjahafnar vegna bæði veðurs- og sjólags, því siglir Herjólfur til Þorlákshafnar seinni partinn í dag.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl: 17:00
Brottför frá Þorlákshöfn kl: 20:45
Hvað varðar siglingar á morgun föstudag, þá verður gefin út tilkynning fyrir klukkan 06:00 í fyrramálið.
Við viljum góðfúslega benda fólki á að þegar þetta tímabil gengur í garð þá er alltaf hætta á færslum milli hafna og því ekki æskilegt að skilja bifreiðar eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Þeir farþegar sem ætla sér að nota gistirými ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eiginn búnað og bera ábyrgð á sóttvörnum á sínu svæði.
Forsíðumynd: Hólmgeir Austfjörð