Laugardagur 17. október 2026

Síldarveiðar í fullum gangi

Huginn VE var nýkominn til heimahafnar í Vestmannaeyjum með síldarfarm þegar Halldór B. Halldórsson tók Valdimar Gest Hafsteinsson skipstjóra tali. Þetta var þriðji túr skipsins á norsk-íslenskri síld, en að sögn Valdimars hefur einnig verið talsvert af íslenskri síld með í aflanum.

Sindri Viðarsson, sviðsstjóri veiða og vinnslu hjá Vinnslustöðinni, segir veiðarnar nú beinast að norsk-íslensku síldinni, sem sé lítillega blönduð íslenskri síld. Um 5.500 tonn séu eftir af norsk-íslenska síldarkvótanum og reiknað með að veiðum úr honum ljúki á næstu tveimur vikum eða í kringum miðjan október.

Í framhaldinu er stefnt að því að hefja veiðar á íslenskri síld í síðustu viku október. Kvóti Vinnslustöðvarinnar í henni er 9.700 tonn, en hluti hans verður veiddur með norsk-íslensku síldinni.

Þá er einnig horft til komandi loðnuvertíðar. Sindri segir beðið með eftirvæntingu eftir upplýsingum frá Hafrannsóknastofnun um nýafstaðinn loðnuleiðangur og vonast eftir fréttum í kringum 10. október.

Viðtal Halldórs við Valdimar Gest má sjá í myndbandinu hér að neðan.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search