Í dag snýr glugginn að meistara skopteikninga hér á landi, þar sem fer sjálfur Sigmund Jóhannsson (1931-2012).
Allir landsmenn muna teikningar hans sem birtust í Morgunblaðinu nánast á hverjum degi í yfir 40 ár eða frá 25. febrúar 1964 til þess tíma, 9. október 2008 er hann hékk sjálfur í gálganum.
Napurt háð, ótrúlegt innsæi og hlífðarlaus afhjúpun sem jafnvel beindist að honum sjálfum, samanber síðasta myndin á síðum Morgunblaðsins. Skopmyndasafn Sigmunds telur um 11.000 myndir og eins og annað sem starfsmenn safnsins vildu sýna svo miklu oftar vantar viðbygginguna – listasalinn vestan við Safnahúsið.
En Sigmund átti fleiri snilldardrætti í penna sínum en við almennt tengjum nafni hans. Hann var stórkostlegur listamaður og málaði fjölda „alvarlegri“ mynda sem munu einnig bera hróður hans víða.
Þessi fallega vatnslitamynd frá 1964 er nefnist Hús og bátur í vetrarskrúða er eitt átta listaverka sem safnið varðveitir eftir þennan hugmyndaríka og ódauðlega snilling.