Í tilkynningu frá Herjólfi kemur fram að enn sé ófært til Landeyjahafnar vegna ölduhæðar, veðurlags og aðstæðna í Landeyjahöfn.
Því siglir Herjólfur til Þorlákshafnar seinni partinn í dag.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl. 16:00
Brottför frá Þorlákshöfn kl. 19:45.
Þeir farþegar sem áttu bókað á þessum tímasetningum hafa verið færðir sjálfkrafa milli hafna, aðrir þurfa að hafa samband við afgreiðslu Herjólfs í síma 4812800 og láta færa pöntun sína í næstu lausu ferð.
Við viljum góðfúslega benda fólki á að þegar þetta tímabil gengur í garð þá er alltaf hætta á færslum milli hafna og því ekki æskilegt að skilja bifreiðar eftir í annarri hvorri höfninni, Landeyjahöfn eða Þorlákshöfn.
Þeir farþegar sem ætla sér að nýta gistipláss ferjunnar eru minntir á að þeir þurfa að koma með sinn eigin búnað.
Einnig langar okkur að ítreka mikilvægi sóttvarna.
Hvað varðar siglingar fyrir morgundaginn verður gefin út tilkynning í síðasta lagi fyrir kl. 06:00 í fyrramálið.
Forsíðumynd: Hólmgeir Austfjörð