Í dag, laugardaginn 4. febrúar kl. 16:00 verður opnuð í Safnahúsinu afar áhugaverð sýning þar sem þrír hagleiksmenn sýna afurð handarverka sinna.
Um er að ræða samsýningu þeirra Kristjáns Egilssonar (Kidda á Náttúrugripasafninu), Kristmanns Kristmannssonar (Kristmanns múrara) og Sigurðar Óskarssonar (Sigga á Hvassó).
Sýningin er framhald af mikilli listsýningu á verkum kvenna sem hér var sett upp fyrir fáeinum árum og er ætlað að draga fram þá gríðarlegu fjölbreytni sem ríkir í Vestmannaeyjum á hvers kyns listsköpun.
Verkin spanna langan tíma á listferli þessara völunda en eiga þau sameiginlegt að vera hreinustu perlur sem þakkarvert er að fá að sýna bæjarbúum.
Verið hjartanlega velkomin í kaffispjall við listamennina í dag.
Sýningin stendur fram til 19. febrúar.