Kl 17:00 í dag/föstudag verða tónleikar Trillu tríósins. Það er tríó ungra og mjög efnilegra tónlistarmanna: Guðný Charlotta Harðardóttir, píanó Vera Hjördís Matadóttir, söngur Símon Karl Sigurðsson Melsteð, klarínett. Þau flytja þekkt Eyjalög Ása og Oddgeirs sem útsett voru af Atla Heimis Sveinssyni.
Kl 17:00 á morgun laugardag leika og syngja Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikar og Silja Elsabet Brynjarsdóttir lög úr söngleikjum m.m..Gestasöngvari Þórarinn Ólason
Þetta er breyting á upphaflegri dagskrá. Kári Egilsson boðaði forföll.
Í ljosi aðstæðna í samfélgainu er aðgangseyrir að báðum viðburðunum. Kr. 1.500.- Þetta er gerti til þess að ná utan um fjölda gesta. En eru lausir miðar á báða viðburði, þeir eru til sölu í Eldheimum.
Viljum taka fram að allur aðgangseyrir tónleikana rennur óskiptur til tónlistarfólksins.
(Myndin er af Guðný Charlottur, Veru Hjördísi og Simon)