10.08.2020
TM móti Stjörnunnar í knattspyrnu hefur verið aflýst vegna kórónuveirufaraldursins.
Mótið átti að fara fram á knattspyrnusvæði Stjörnunnar í Garðabæ helgarnar 5-6 og 12-13 september.
Á mótinu keppa alla jafna knattspyrnuiðkendur í 6.- 7.- og 8. flokki.
Á síðasta ári voru 4.000 þátttakendur á mótinu sem er eitt stærsta sinna tegundar og auglýst sem „síðasta stórmót sumarins“.
