Vestmannaeyjabær auglýsti nýverið eftir sérfræðing á launadeild sveitarfélagsins.
Um er að ræða 80% starf, en alls bárust sex umsóknir um starfið, en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Fram kom í auglýsingunni að sérfræðingur á launadeild annist launavinnslu og eftirlit með framkvæmd kjarasamninga undir verkstjórn deildarstjóra launadeildar.
Samkvæmt upplýsingum frá Vestmannaeyjabæ voru umsækjendur um starfið þessir:
- Daníel Freyr Jónsson
- Kolbrún Jónsdóttir
- Linda Björg Ómarsdóttir
- Sæbjörg Helgadóttir
- Víðir Þorvarðarson
Forsíðumynd: Halldór B. H