Föstudagur 16. október 2026

Sendum tónlist út í geim!

ÞYKJÓ ehf  var úthlutað  Kr. 5.800.000 kr í styrk en þau ætla að senda tónlist út í geim í samstarfi við Vísindasmiðju Háskóla Íslands, Hörpu tónlistarhús og fleiri.

Sendum tónlist út í geim! er þverfaglegt þátttökuverkefni fyrir börn, innblásið af Gullplötunni ,,Sounds of Earth” sem var send út í geim árið 1977 af NASA. Hópur hönnuða, vísindamanna og tónlistarfólks býður nú börnum um land allt í ferðalag um óravíddir tónlistarinnar, sem teygja sig út í geim og aftur heim. ,,Eiga geimverur plötuspilara? Hafa þær enn þá áhuga á Beethoven og Chuck Berry? Þurfa geimverurnar kannski að fá nýja plötu frá nýrri kynslóð? Hvaða tóna vilja börn á Íslandi senda þeim?“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tilkynntu á sunnudaginn 29. maí, á degi barnsins, um úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði Íslands. Alls hljóta 34 verkefni styrk að þessu sinni en heildarfjárhæð styrkja nemur 92 milljónum króna. Er þetta í fjórða sinn sem styrkjum er úthlutað úr sjóðnum.

Tilkynnt var um úthlutun styrkja við hátíðlega athöfn í Skála Alþingis. Forsætisráðherra og menningar- og viðskiptaráðherra fluttu ávörp og Drengjakór Reykjavíkur flutti tónlistaratriði.

Alls bárust 106 umsóknir og nam heildarfjárhæðin sem sótt var um rúmum 380 milljónum króna. Þriggja manna fagráð fjallaði um umsóknir og samþykkti forsætisráðherra tillögur stjórnar Barnamenningarsjóðs um úthlutun styrkja.

Í rökstuðningi fagráðsins segir að umsóknirnar sem bárust beri fagurt vitni ástríðu og hugmyndaauðgi þeirra sem sinna skapandi störfum með börnum og í þágu barna. Þar eru á ferðinni fagmenn og frumkvöðlar sem sinna flóknum verkefnunum af djúpri þekkingu og einlægri sköpunargleði.

Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni aldarafmælis fullveldis Íslands árið 2018. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna og styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.

Yfirlit yfir úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði 2022

Forsíðumyd er skjáskot úr myndinni ET.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search