Við getum öll hjálpað Úkraínu að verja sig gegn innrás Rússlands.
Úkraínska þjóðin hefur barist hetjulega frá fyrsta degi. Bæði menn og konur hafa gripið til vopna til að verja landið sitt og framtíð barnanna sinna.
Eitt af því sem skortur er á í Úkraínu er hlýr fatnaður og munu hlýir íslenskir sokkar gagnast vel nú í vetur einkum fyrir hermenn og þau sem eru tilbúin að fórna öllu til að verja Úkraínu gegn innrásinni.
Við getum öll gert gagn
Getur þú prjónað sokka og sent hlýju frá Íslandi?
Ferlið er einfalt:
- Prjónaðu sokkana
- Skilaðu sokkunum í plastpoka á móttökustaði um allt land
Við getum öll gert gagn!
Skoðaðu uppskriftina á www.sendumhlyju.is
Hér í Vestmannaeyjum er kassi í Krónunni sem hægt er að skila skokkum í.

