26.11.2020
Í aðdraganda jóla og við upphaf nýs árs huga margir að syndum liðinna daga.
Bókasafn Vestmannaeyja vill hjálpa til við að lýsa leið til betrunar með því að bjóða upp á
„sektarlausa viku” 20. – 30. nóvember.
Unnt er að skila bókum á safnið á opnunartíma eða í póstkassa við útidyr, án eftirmála.
Kærkomið tækifæri til að gera hreint fyrir sínum dyrum og hefja nýtt ár með gleði hins syndlausa lánþega.
