Kristín Ástgeirsdóttir kynnti og las úr ævisögu ljúflingsins og tónskáldsins Oddgeirs Kristjánssonar sem allir Vestmannaeyingar og Íslendingar þekkja vegna hinna fjölmörgu og stórkostlegu sönglaga sinna síðastliðin laugardag.
En hver var maðurinn og hvernig leið hin alltof stutta ævibraut?
Þótt flestir meðal þeirra sem komnir eru af barnsaldri telji sig geta svarað spurningunni og oft með ærinni þekkingu mun margt koma verulega á óvart í samantekt Kristínar. Svo háttar oft til um „þjóðareign“ sem allir telja sig þekkja.
Halldór B. Halldórsson filmaði upplestur Kristínu fyrir ykkur sem misstuð af viðburðinum, hér er fyrrihluti. / Forsíðumynd er skjáskot frá oddgeir.is af Oddgeir og fjölskyldu.
Fyrsti hluti:
Annar hluti: