Fimmtudagur 8. október 2026
Bærinn höfnin

Segir gos í miðju hafnarmynninu ekki útilokað

Þó nokkr­ar lík­ur eru á því að það gjósi aft­ur í Heima­ey í ná­inni framtíð. Gos gæti þess vegna komið upp í miðju hafn­ar­mynn­inu svo mik­il­vægt er að fleiri en ein viðbragðsáætl­un sé fyr­ir hendi, að sögn Þor­valds Þórðar­son­ar, pró­fess­ors í eld­fjalla­fræði við Há­skóla Íslands í viðtali við mbl.is

„Ef það verður annað gos á Heima­ey þá er það at­b­urður sem að vert er að hafa mikl­ar áhyggj­ur af. Við þurf­um að vera til­bú­in með viðbragð þannig að við get­um komið fólki frá staðnum eins fljótt og auðið er,“ seg­ir Þor­vald­ur.

Hann seg­ir lík­urn­ar á eld­gosi þó nokkr­ar, og bend­ir á að gosið hafi í Vest­manna­eyj­um árin 1963 og 1973, ann­ars veg­ar þegar Surts­ey varð til og hins veg­ar þegar gaus í Heima­ey.

„Það get­ur gosið í ná­inni framtíð aft­ur á Heima­ey. Von­andi á þeirri línu sem hef­ur verið að gjósa á und­an­förn­um árþúsund­um, sem að eld­fjallið er á. Því að þá erum við aust­ast á eyj­unni og þá kannski hafa menn ein­hvern viðbragðstíma til þess að koma fólki frá eyj­unni,“ seg­ir Þor­vald­ur.

„Það get­ur líka verið þannig að það get­ur komið upp gos í miðju hafn­ar­mynn­inu í eyj­um. Þannig að menn þurfa að vera með ekki bara áætl­un A, held­ur líka áætl­un B, og kannski C og jafn­vel D – til þess að bregðast við slík­um at­b­urði í Vest­manna­eyj­um.“

Horfðu á viðtalið í heild sinni.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search