Fimmtudagur 8. október 2026

Sebastiano Caboto komið til Vestmannaeyja

Sebastiano Caboto komið til Vestmannaeyja Lúxemborgska dýpkunarskipið Sebastiano Caboto kom til Vestmannaeyja í dag.

Skipið er í eigu stórfyrirtækisins Jan De Nul, sem hefur tekið að sér dýpkun Landeyjahafnar næstu þrjú árin. Koma skipsins hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu í Vestmannaeyjum, enda er viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar ein af lykilforsendum þess að tryggja megi öruggar og reglulegar siglingar Herjólfs milli lands og Eyja yfir vetrarmánuðina.

Vegagerðin samdi í vor við Jan De Nul um viðhaldsdýpkun Landeyjahafnar á árunum 2026–2029. Fyrirtækið er meðal stærstu dýpkunarfyrirtækja heims og þekkir vel til aðstæðna við Landeyjahöfn, en það annaðist dýpkun þar á árunum 2015–2018.

Sebastiano Caboto er öflugt dýpkunarskip, smíðað árið 2011. Það er rúmlega 93 metra langt og tæplega 20 metra breitt. Skipið getur tekið um 3.400 rúmmetra í lest og dýpkað niður á allt að 26,5 metra dýpi.

Samkvæmt samningi Vegagerðarinnar er gert ráð fyrir dýpkunarframkvæmdum frá september og fram í apríl ár hvert. Áætlað er að fjarlægja þurfi á bilinu 250.000 til 500.000 rúmmetra af efni á ári úr og við Landeyjahöfn.

Miklar væntingar eru bundnar við komu Jan De Nul og Sebastiano Caboto, ekki síst eftir erfiða stöðu í samgöngum milli lands og Eyja síðasta vetur. Öflug og markviss dýpkun Landeyjahafnar skiptir Eyjamenn miklu máli, enda er höfnin lykillinn að öruggum og greiðum heilsárssamgöngum við fastalandið.

Mynd og texti: Magnús Bragason.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search