U18 ára landslið kvenna sigraði í gær leik 2 af 3 í umspilsmóti í A keppni EM landsliða í aldursflokknum
Í gær sigruðu þær lið Slóvakíu í kaflaskiptum leik, en lokatölur voru 29-26 Íslandi í vil.
Sara Dröfn Richardsdóttir skoraði 2 mörk og Þóra Björg Stefánsdóttir 1.
Í dag er hvíldardagur en á morgun fimmtudag mæta stelpurnar okkur Serbum í hreinum úrslitaleik um sæti í lokakeppninni 2023 en greint er frá þessu á facebooksíðu Íbv handboltans.
Serbneska liðið sigraði Slóvenía í gær með 5 marka mun og Slóvakíu í gær með 10 marka mun. Það er því ljóst að verkefnið verður krefjandi en íslenska liðið er feykisterkt og til alls líklegt á fimmtudag!
Meðfylgjandi mynd fengum við senda í dag af fulltrúum ÍBV í verkefninu þeim Amelíu Dís Einarsdóttur, Söru Dröfn Richardsdóttur og Þóru Björgu Stefánsdóttur segir í lokum í færslu ÍBV Handboltans.