Fimmtudagur 8. október 2026

Samstarfssamningur milli Sagnheima, náttúrugripasafns og Sea Life Trust – myndir

Í dag var undirriðaður samstarfssamningur milli Sagnheima, náttúrugripasafns og Sea Life Trust um varðveislu og sýningu þeirra síðarnefndu á munum náttúrugripasafnsins.

Sigurhanna Friðþórsdóttir verkefnastjóri Safnarhús Vestmannaeyja hélt stutta ræðu sem við fengum að deila hluta af henni hér með ykkur:  ( fleiri myndir eru hér fyrir neðan ) 

Flest þekkjum við eflaust sögu Náttúrugripasafns Vestmannaeyja sem um tíma hét Sæheimar og nú síðast Sagnheimar, náttúrugripasafn.

Safnið var stofnað árið 1964 að frumkvæði Guðlaugs Gíslasonar, fyrrverandi bæjarstjóra og alþingismanns. Friðrik Jesson var fenginn til að sjá um uppbyggingu þess. Hann stoppaði upp marga þá fugla, fiska og önnur dýr sem varðveitt eru á safninu, auk þess sem hann var safnvörður. Fjölmargir velunnarar safnsins hafa safnað og gefið þá muni sem þar eru og nú síðast fékk safnið að gjöf 23 sjaldgæfa og verðmæta fugla sem Ólafur Tryggvason, Olli málari færði okkur í miðjum flutningum. 

Vestmannaeyjabær rekur í dag safnið undir hatti Sagnheima.

Það var mörgum áhyggjuefni þegar spurðist út á síðasta ári að húsnæðið að Heiðarvegi 12, þar sem náttúrugripasafnið var til húsa.

Því er það okkur mikið ánægjuefni að munir náttúrugripasafnsins hafi fengið hér nýtt heimili, en hluti af dagskránni í dag felst einmitt í undirritun samstarfssamnings milli Sagnheima, fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar og Sea Life Trust um varðveislu og sýningu munanna.

Undirbúningur að pökkun, flutningi og uppsetningu muna hófst á haustmánuðum 2021 en það er vandasamt verk að ganga frá náttúrumunum af þessu tagi, ekki síst þar sem Sagnheimar eru viðurkennt safn sem þýðir að strangar reglur gilda um meðferð og varðveislu munanna. 

Þá höfum við notið leiðbeininga frá Náttúruminjasafni Íslands, sem er höfuðsafn Sagnheima náttúrugripasafns, auk liðsinnis Safnaráðs og styrks frá Safnasjóði við uppsetningu sýningarinnar.

Við gerð samstarfssamningsins þótti rétt að setja saman lista yfir alla þá muni sem tilheyra náttúrugripasafninu og ástand þeirra.

Þetta eru samtals:

  • 240 fuglar.
  • 97 fiskar og krabbar.
  • 11 spendýr, auk skelja, skordýra og ýmissa fylgihluta sem ekki eru skráð á sérstök númer.
  • 400 steinar í steinasafni Sagnheima.

Samtals gerir þetta því ríflega 700 muni.

Þeir Þórarinn Blöndal og Pétur Örn Friðriksson sáu um hönnun sýningarinnar og settu hana upp með dyggri aðstoð félaga síns Erlings Jóhannessonar og þeirra Guggu Rúnar, Guðrúnar Óskar, Viktors Péturs og Zindra Freys úr Safnahúsi.

Í sýningarskápunum sem nú eru komnir upp eru að mestu fiskar, krabbar og aðrar kynjaverur hafsins en stefnt er að uppsetningu á fuglum o.fl. í haust.

Sigurhanna þakka að lokum þeim Audrey, Línu, Helen og þeirra starfsfólki fyrir þeirra þátt í vinnunni, svo og starfsmönnum Þjónustumiðstöðvar en Jói í Laufási og hans menn.

Á næstu vikum verða settar upp spjaldtölvur með upplýsingum um þau dýr sem hér eru til sýnis en sú vinna er í höndum starfsfólks Sea Life Trust og styrkt af Uppbyggingarsjóði SASS.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search