Fimmtudagur 8. október 2026

Samkomulag um landgræðslu á Heimaey með laxamykju

Á fundi umhverfis- og skipurlagsráðs síðastliðinn mánudag voru lögð fyrir ráðið drög að samkomulagi milli Icelandic Land Farmed Salmon, Landgræðslunnar og Vestmannaeyjabæjar varðandi landgræðslu á Heimaey með laxamykju.

Icelandic Land Farmed Salmon ehf. (ILFS), vinnur að undirbúningi á landeldi á laxi í Vestmannaeyjum. Gert er ráð fyrir að seiðaframleiðsla og matfiskaeldi muni fara fram í Vestmannaeyjum. Félagið hefur sótt um leyfi fyrir 10 þús. tonna framleiðslu á laxi. Í fyrri áfangi verkefnisins, sem nú er unnið að, er gert ráð fyrir að framleiða 5 þús. tonn af laxi. Stefnt er á að um mitt ár 2023 muni framleiðsla á laxaseiðum hefjast. Frá og með þeim tíma má búast við að til muni falla lífræn laxamykja (úrgangur frá fiskum og fóðurleifar) frá framleiðslunni. Hægt og bítandi mun magnið aukast þangað til framleiðsla í matfiskastöð er komin í fulla starfsemi. Mykjan er rík af næringarefnum og hentar vel til að ná upp gróðurþekju á erfiðum svæðum. Vinnsluferlar mykjunnar eru þekktir og góð reynsla hefur verið af áþekku hráefni til landgræðslu á Íslandi, sem á uppruna sinn úr fiski. Ekki er talin mikil áhætta af verkefninu og góður árangur líklegur. Þróun aðferða við mykjuframleiðslu og -dreifingu mun verða þróuð og aðlöguð að aðstæðum á Heimaey, í sátt og samlyndi við samfélagið í Eyjum.

Nákvæmar tölur liggja ekki fyrir um magn mykju sem mun koma frá landeldinu þar sem verkefnið er enn í þróun. Frumáætlun gerir ráð fyrir að um 1000 tonn af þurrefnum muni falla til við 5000 tonna framleiðslu.

ILFS mun leggja til laxamykju og sjá til þess að henni verði dreift skv. Uppgræðsluáætlun og verklagsreglum sem aðilar samkomulagsins munu koma sér saman um, móta og vinna eftir. Landgræðslan mun leggja til ráðgjöf til Vestmannaeyjabæjar og ILFS varðandi svæði til uppgræðslu og leggja til fræ til sáningar. Vestmannaeyjabær mun leggja til svæði til uppgræðslu, merkja svæðin og tilkynna dreifingu áburðar t.d. á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Vestmannaeyjabær mun taka virkan þátt í vinnuhóp um uppgræðslu og leitast við að leggja til starfsfólk til sáningar á uppgærðslusvæðum.

 

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is
Search