Fimmtudagur 21. september 2023

Samherji skilar Smáey úr leigu

29.04.2020

Í gærmorgun skilaði Samherji Smáey VE úr leigu en fyrirtækið hefur leigt skipið af Bergi-Hugin í Vestmannaeyjum sl. tvo mánuði.

Smáey bar áður nafnið Vestmannaey VE. Ástæða þess að Samherji leigði skipið til veiða var seinkun á afhendingu nýs Harðbaks. Smáey hefur verið seld Þorbirni hf. í Grindavík og mun skipið verða afhent nýjum eiganda í byrjun maímánaðar. Smáey er ísfisktogari, smíðaður í Gdynia í Póllandi fyrir Berg-Hugin árið 2007. Skipið er 485 brúttótonn að stærð, 28.9 m langt og 10.39 m breitt. Í skipinu er 699 hestafla Yanmar vél. 

Smáey mun nú fara í slipp í Vestmannaeyjum þar sem skipið verður meðal annars málað í litum Þorbjarnar.

Forsíðumynd: Guðmundur Alfreðsson / greint er frá þessu á vef Síldarvinnslunnar.

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is