Miðvikudagur 6. desember 2023

Samherji leigir Smáey VE

28.02.2020

Vegna seinkunar á afhendingu nýs Harðbaks hefur Samherji tekið togarann Smáey VE-444 á leigu næstu tvo mánuðina.

Um er um að ræða 485,6 brúttótonna skuttogara í flokki skipa undir 29 metra lengd en skipið var smíðað af Nordship skipasmíðastöðinni í Gdynia í Póllandi árið 2007.

Samherji leigir skipið af útgerðarfélaginu Berg-Hugin en togarinn hefur heimahöfn í Vestmanaeyjum. Smáey VE-444 hét lengst af Vestmanney en fékk nýtt nafn um mitt síðasta ár þegar ný Vestmanney kom til landsins.

Minna hefur veiðst í efnahagslögsögunni í vetur en undanfarin ár og skýrist lakari veiði einkum af óhagstæðu veðurfari. Skipti þetta einnig máli þegar tekin var ákvörðun um leigu skipsins.  

„Þetta er virkilega gott skip, lipurt og skemmtilegt. Veiðar hafa gengið ágætlega. Við fórum í  fyrsta túrinn hinn 19. febrúar. Við höfum landað þrisvar sinnum og í tvö skiptanna var fullfermi,“ segir Hjörtur Valsson skipstjóri á Smáey VE-444. Hjörtur verður skipstjóri á nýjum Harðbak EA3 þegar skipið fer til veiða en það er sem stendur í slipp á Akureyri

Greint er frá þessu á vef samherja

Auglýsingar í blaðið

Skil á auglýsingum er í hádeginu á mánudögum.  Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:

  • Heilsíða 170 x 240 mm + 3 mm blæðing 
  • Hálfsíða 170 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Kvartsíða 84 x 120 mm + 3 mm blæðing
  • Renningur 170 x 60 mm + 3 mm blæðing
  • Kubbur 84 x 59 mm + 3 mm blæðing
 
Hafðu samband fyrir verð tigull@tigull.is eða í síma 856-4250

Auglýsingar á vefinn

Auglýsingar sendist á tigull@tigull.is Stærðirnar eru:
  • Stór banner – þver yfir síðuna 1018 x 360 px
  • Auglýsing hægra megin 310 x 400 px
Hægt er að skoða aðrar stærðir – endilega sendið okkur póst á tigull@tigull.is